Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1971/ Sjómannadagurinn í Vestmannaeyjum 1970

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. febrúar 2018 kl. 16:01 eftir Vpj1985 (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. febrúar 2018 kl. 16:01 eftir Vpj1985 (spjall | framlög) (Ný síða: Sjómannadagurinn í Vestmannaeyjum 1970 S JÓMANNADAGURINN 1970 fór fram með hefðbundnum hæcti og þótti vel takast. Við birtum hér úrslit í íþróttagreinum dagsins og...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sjómannadagurinn í Vestmannaeyjum 1970

S JÓMANNADAGURINN 1970 fór fram með hefðbundnum hæcti og þótti vel takast. Við birtum hér úrslit í íþróttagreinum dagsins og ávarp Friðriks Ásmundssonar skipstjóra, sem secti hátíð dagsins.

Avarp Friðriks Asmundssonar skipstjóra við setningu Sjómannadagsins 1970: „Meðal þess sem Sjómannadeginum er ætlað að vekja athygli á og ber að vinna að er; að minnast sjómanna þeirra, sem látizt hafa af slys-förum síðastliðið sjómannadagsár, að kymia störf sjómanna, að vinna að aukinni menntun sjómnna, að vinna að velferðarmálum þeirra og reka dvalarheimili aldraðra. Seinni arin hefur lítið frið fyrir því að kynnt hafi verið störf sjómanna á Sjómannadaginn og er það miður. Afcur á móti eru sýndar ýmsar íþróttir, sem minna á sjómennsku og yfirleitt er það, sem mesta athygli vekur og vissulega er það vel, að sjómenn lécti sér upp á hátíðisdegi sínum og taki þátt í drengilegri keppni. Að kynna störf sjómanna er atriði, sem Sjómanna-dagsráð þyrfti að hyggja betur að í framtíðinni. Þar er vissulega af mörgu að taka og ef vel til tækist, mundi það hafa mikið gildi fyrir sjó-mannastéttina. Að auka menncun sjómanna er nokkuð, sem við hér í Vestmannaeyjum gecum verið stoltir af, því ekkert sambærilegt byggðar-Iag á landi hér getur státað af Stýrimannaskóla, Vélstjóraskóla og nú síðast Matsveinaskóla, og vissulega þakkar sjómannastéttin þeim mönn-um, sem gerðu þessa skóla að raunvemleika og allt byggðarlagið nýcur nú góðs af. Á hátíðisdegi sjómanna í Vestmannaeyjum væri vissulega þarft að kynna þessar stofnanit meira en gert er. Þes?ar stofnanir, sem öllum sjómönnum þykir vænt um, á að kynna á sjó-mannadaginn og sýna áhrifamönnum hér hvern hug við sjómenn berum til sjómannaskólanna. Velferðarmálum sínum; kaupi og kjörum hafa sjómerui lítt haldið á lofti á hátíðisdegi sínum. Hafa þeir með því viljað undirstrika, að Sjómannadagurinn er fyrst og fremst hátíðis-dagur en ekki baráttudagur. Bygging og rekst-ur dvalarheimilis aldraðra er eitt af markmiðiun Sjómannadagsins. Þar sýnir Hrafnista í Reykja-vík hvað gert hefur verið. Þessi glæsilega bygg-ing, sem reist er í hinum göfugasta tilgangi til að gera öldruðum sjómönnum og öldruðum sjómannskonum ævikvöldið sem þægilegast, et eign íslenzkra sjómanna. Vissulega þakkar sjó-mannastéttin öllum íslendingum öflugan stuðn-ing við byggingu og rekstur Hrafnisni. Góðir áheyrendur, von okkar allra er, að Sjómannadagurinn verði hátíðlegur haldinn um ókomin ár í þeim anda, sem honum var ætlað í upphafi, þ. e. a. s. að minnast þeirra, sem farizt hafa, að kynna störf sjómanna, að vinna að auk-inni menntun sjómanna, að vinna að velferðar-málum sjómanna og að reka dvalarheimili aldr-aðra Með þessum orðum segi ég Sjómannadag-inn 1970 settan."

Iþróttir Sjómannadagsins 1970:

Reiptog milli Vesturbæjar og Austurbæjar: Austurbær bar sigur úr býmm.

Koddaslagur þátttakendur: Arni Friðgeirsson, Haukur Friðriksson, Elías Guðmundsson, Guðni Sigurðsson, Kxistján Hilmarsson, Sveinbjörn Sigurðsson, Grétar Halldórsson, Sigmar Gíslason, Sigurður, Anný Heiðarsdóttir, Erla Gunnarsdóttir