Auðunn Oddsson
Auðunn Oddsson, Sólheimum, fæddist á Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri 24. september 1893. Auðunn flytur til Vestmannaeyja árið 1927 og gerist sjómaður á Mínervu. Hann byrjar formennsku á Enok I en er síðar með Síðuhall, Nonna (sem Auðunn tapaði við árekstur suður af Eyjum), Valdimar og Guðrúnu. Eftir það hætti Auðunn formennsku en stundaði þó sjómennsku eftir það.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.