Björn Magnússon
Björn Magnússon fæddist á Fáskrúðsfirði 9. nóvember 1892. Árið 1911 kom Björn til Vestmannaeyja og var háseti á Skarphéðni hjá Jóni í Ólafshúsum. Síðar var hann á Svan og Ásdísi hjá Ólafi Ingileifssyni. Formennsku hóf Björn á Höfrung árið 1917. Seinna er hann svo með Svan, Gamm, Snyg, Njörð, Siri. Björn hætti formennsku árið 1935 sökum vanheilsu.
Björn lést árið 1935.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.