Jóhann Vilhjálmsson (Selalæk)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. júní 2006 kl. 10:29 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. júní 2006 kl. 10:29 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Leiðrétt)
Fara í flakk Fara í leit

Jóhann Vilhjálmsson fæddist 1893. Hann kom til Vestmannaeyja 1917 og gerðist sjómaður á Blíðu hjá Sigurjóni Sigurðssyni frá Brekkuhúsi.

Formennsku byrjaði Jóhann árið 1921 með Faxa sem var stór og nýr bátur. Eftir það er hann formaður með Helgu og Sæbjörgu.

Árið 1935 kaupir Jóhann nýjan bát, ásamt Sæmundi Jónssyni í Jómsborg. Bar hann nafnið Gulltoppur og var Benóný Friðriksson í Gröf formaður.

Eftir að Jóhann hætti á sjónum og fór hann að vinna í Hraðfrystistöð Vestmannaeyja. Hann lést árið 1967.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. 5 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.