Sigurður Jónsson Ben

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. júní 2006 kl. 11:16 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júní 2006 kl. 11:16 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Jónsson Ben var fæddur að Núpi undan Eyjafjöllum árið 1892.

Ungur fór hann til Vestmannaeyja til sjóróðra en þá voru vélbátarnir að hefja göngu sína í Eyjum.

Formennsku byrjaði hann á Portlandi árið 1923 og var þar eina vertíð og eftir það var hann formaður á Unni.

Eftir að Sigurður fluttist til Reykjavíkur vann hann sem togarasjómaður á Baldri þar til hann lést af slysförum árið 1943.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. 6-7 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.