Jón Hafliðason (Bergstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júní 2006 kl. 10:20 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júní 2006 kl. 10:20 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Hafliðason, Bergstöðum, fæddist í Mýrdal þann 2. febrúar 1887. Jón fór til Vestmannaeyja árið 1903 og var sjómaður á opnu skipunum þar til vélbátarnir komu. Þá kaupir hann bát með fleiri mönnum, var það Haukur. Formennsku byrjar Jón árið 1913 með Siggu. Eftir það er Jón meðal annars með Njál og Björg en þann bát missti Jón í suðaustan ofviðri árið 1924. Eftir það hætti Jón formennsku.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.