Vigfús Jónsson (formaður)
Vigfús Jónsson var fæddur 14. júní 1871. og lést 26. apríl 1943. Hann var sonur Jóns Vigfússonar, bónda og smiðs í Túni, og Guðrúnar Þórðardóttur. Kona hans var Guðleif Guðmundsdóttir frá Vesturhúsum. Þau bjuggu að Holti við Ásaveg.
Hann var formaður á Sigurði frá 1908-1920 og eftir það rak hann útgerð til dauðadags.
Heimildir
- Blik, 23. árg 1962, grein um sögu barnafræðslunnar í Vestmannaeyjum eftir Þorstein Víglundsson.