Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2003/ Sjómannadagurinn 2002

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. mars 2017 kl. 14:56 eftir Halla1 (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. mars 2017 kl. 14:56 eftir Halla1 (spjall | framlög) (Ný síða: <center>'''STEFÁN BIRGISSON'''</center> <big><big><center>'''Sjómannadagurinn 2002'''</center></big></big> Sjómannadagshelgin byrjaði eiginlega á fimmtudeginum 30. maí með m...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
STEFÁN BIRGISSON
Sjómannadagurinn 2002

Sjómannadagshelgin byrjaði eiginlega á fimmtudeginum 30. maí með minningartón-leikum um félaga okkar þá Guðjón K. Mattíasson og Rune Verner Sigurðsson. Hljómsveitin Dúndurfréttir hélt tónleika í Höllinni og spilaði lög mestmegnis eftir Pink Floyd og fleiri gamla meistara s.s. Uriah Heep, Black Sabbat og fl. Rúmlega 200 manns mættu og skemmtu sér vel. Allur ágóði af tónleikunum rann óskertur til fjölskyldna þeirra Guðjóns og Rune.
Föstudaginn 31. maí var haldið sjómannagolfmót á golfvellinum. Um 25 sjómenn mættu og voru spilaðar 9 holur, tvímenningur. Góðum og lélegum spilurum var blandað saman.
Mörg draumahögg sáust en líklega fleiri sem allir vilja gleyma og margar kúlur týndust!! En allir höfðu gaman af og höfðu á orði að gera þetta að föstum lið á Sjómannadegi.
Enginn sigurvegari var krýndur en allir fengu verðlaun í gutlandi formi í golfskálanum eftir mót.
Riðlakeppni í knattspyrnu fór einnig fram á föstudeginum. Átta lið mættu til leiks og öll í sérsaumuðum búningum. Útgerðarmennirnir voru svo með eitthvað við þorstanum á hliðarlínunni. Mörg falleg mörk voru skoruð og tilþrifin mikil enda vanir menn á ferð í bland við nýliða sem þó gátu hlaupið meira en þeir eldri og voru harðsperrur farnar að gera vart við sig strax í fyrsta leik.
Áhafnir Þórunnar Sveinsdóttur og Hugins stóðu uppi sem sigurvegarar í riðlakeppninni og kepptu til úrslita á laugardeginum.
Um kvöldið var Árni Johnsen með sitt árlega gigg í Akóges ásamt gestaspilurum og var fjölmennt að vanda.


Laugardagur 1. júní.
Sjómannadagsráð tók upp þá nýbreytni að færa dagskrána í íþróttahöllina að þessu sinni í samstarfi við ÍBV sem var með sýninguna Vor í Eyjum þessa sömu helgi.
Dagskráin hófst með nokkrum orðum séra Kristjáns Björnssonar sóknarprests í Landakirkju. Þar á eftir var söngur, fimleikar, frístældans og fleira skemmtilegt í nýja salnum en sýningin Vor í Eyjum var í gamla salnum.
Síðan var haldið í Sundhöllina og keppt í fatasundi milli áhafna. Þar sigraði Verðandi, Jötunn í öðru en vélstjórar ráku lestina.
Flotgallasund milli áhafna var næst á dagskrá og þar vann Gulltindur með Jóa Ben fremstan í flokki. Síðast var keppt í kararóðri þar sem tveir voru í kari með árar og áttu að róa fram og til baka í lauginni. Eftir svolitla byrjunarörðugleika sigraði Gulltindur einnig í kararóðrinum við litlar undirtektir Smáeyjarmanna en Óttar Gull kærði úrslitin og hélt fram sigri sinna manna.
Eftir fundahöld keppnisstjómar voru úrslitin látin standa en keppnisstjórnar sagði af sér og fól Óttari yfirstjóm kappleikja hér eftir.
Skákmót milli sjómanna og landkrabba fór fram t Alþýðuhúsinu að venju og gott ef sjómenn unnu ekki að þessu sinni en staðfest úrslit vantar.
Úrslitaleikurinn í fótboltanum varð sögulegur og hin mesta skemmtan. Eftir venjulegan leiktíma og framlengingu var jafnt og þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni þar sem Huginsmenn fögnuðu sigri 5-3 en Viðar Sigurjóns og Gummi Lalla sögðu það ekki að marka þar sem Huginsmenn settu inn á óþreytta menn í vítakeppnina Kvöldið var svo tekið með trompi í Höllinni með mat, glensi og gríni og Paparnir skemmtu okkur fram á morgun. Áhöfn Snorra Sturlusonar var heiðruð fyrir vasklega framgöngu við björgun bv. Örfiriseyjar á ísafjarðardjúpi. Sjómannadagurinn 2. júní var með hefðbundnu sniði og fánar dregnir að húni víðsvegar um bæinn um morguninn. Kl. 13 var messað í Landakirkju, prestur séra Kristján Björnsson og var þétt setinn bekkurinn að venju. Látlaus athöfn og falleg. Eftir messu var gengið út að minnisvarðanum um hrapaða og drukknaða og lagður þar blómsveigur og síðan minntist Snorri Oskarsson látinna félaga okkar rneðan fulltrúai" sjómannafélaganna stóðu heiðursvörð með félagsfána sína. Allir mættu síðan á nýuppgert Stakkó seinni-partinn. Leikfélag Vestmannaeyja setti sterkan svip á Stakkó þennan dag með alls kyns uppákomum. Eldri sjómenn voru heiðraðir fyrir störf sín í þágu sjómannastéttarinnar. Frá Verðandi Sveinn Hjörleifsson skipstjóri, frá Vélstjórafélaginu, Þorsteinn Þorsteinsson vélstjóri (Doddi í olíunni) Sjómannadagsráð heiðraði áhöfn Danska Péturs fyrir björgun áhafnar Ofeigs. Hilmar skipstjóri tók við viðurkenningunni Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi heiðraði Svein Hjörleifsson.


og frá Jötni Sigurður Jónsson sjómaður. Ahöfn Danska Péturs var veitt viðurkenning frá Sjómannadaj»sráði og Eykindilskonum fyrir björg-un áhafnar Ofeigs sem sökk í desember 2001. Ahöfn björgunarskipsins Þórs var veitt viðurkenning fyrir björgun manna úr sjávarháska við Elliðaey en slöngubáti hvolfdi undan mönn-unum. Þórarinn Sigurðsson fékk einnig viðurkenningu af sama tilefni en hann sá slysið og tilkynnti um það. Einn þeirra sem lenti í sjónum við Elliðaey, Bjarki Kristjánsson, hlaut einnig viðurkenningu fyrir að halda félaga sínum á floti þar til aðstoð barst. Einnig voru heiðraðir fyrir störf að björgun-armálum sjómanna þeir Friðrik Asmundsson, Sigmund Jóhannsson og Sigmar Þór Sveinbjörns-son. Um þessar heiðranir sá að venju Snorri Óskars-son sem einnig var ræðumaður dagsins og mæltist honum vel sem endranær. Á Stakkó voru hljómleikar og leiktæki fyrir krakkana og veðrið Iék við okkur, sól og hiti allan daginn. Eykyndilskonur voru auðvitað með kaffi-hlaðborð í Alþýðuhúsinu og geystust þær svuntu-skrýddar með rjómatertur og alls konar Iostæti um sali en þó nóg væri að gera, var alltaf stutt í spjallið og brosið hjá þeim. Sjómannadagsráð þakkar þeim fjölmörgu sem komu að undirbúningi Sjómannadagsins árið 2002. Guð blessi starfið. Með sjómannakveðju Sjómannadagsráð Vestmannaeyja. Stefán Birgisson