Bílaeign
Bílaeign Vestmannaeyinga hefur verið þónokkur í gegnum tíðina og mörgum komið á óvart óvenjumikil bílanotkun miðað við smæð Heimaeyjar.
Fyrsta bifreiðin var skrásett hér 1919 og var það Maxwell flutningabifreið í eigu Eyþórs Þórarinssonar og fleirra. Reyndist sú bifreið illa, enda bærinn síður en svo hannaður til bifreiðaaksturs. Oddgeir Þórarinsson, bróðir Eyþórs, var bílstjóri bílsins og var hann fyrsti lögskráði bílstjórinn í bænum. Margir töldu bílinn vera háskatæki og í þokkabót tiltölulega dýrt að fá hann leigðan.
Heimildir
- Sigfús M. Johnsen. Saga Vestmannaeyja, I. bindi. Reykjavík, Fjölsýn forlag, 1989.