Vinnslustöðin hf

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. júní 2006 kl. 16:07 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júní 2006 kl. 16:07 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Vinnslustöðin var stofnuð árið 1946. Vinnslustöðin er útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki. Starfsmenn stöðvarinnar eru um 220. Framkvæmdastjóri er Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson.

Upphaf

Á aðalfundi Lifrarsamlags Vestmannaeyja í október 1945 báru þrír útgerðarmenn úr Vestmannaeyjum, Helgi Benediktsson, Eiríkur Ásbjörnsson og Kjartan Guðmundsson tillögu um að Lifrarsamlag Vestmannaeyja yrði fært út á þann hátt að mögulegt væri að gervinna fiskafurðir félagsmanna og var skipuð til þess að skoða þetta mál nánar.

Árið 1946 komu þessir menn saman á fund og var almennur áhugi fyrir því að þarft væri að útgerðarmenn myndu taka höndum saman um að koma upp fiskvinnslustöð í Vestmannaeyjum en sumir nefndarmanna voru mótfallnir því að það yrði gert sem sambandi við Lifrarsamlagið heldur átti að gera það sjálfstætt frekar. Nefnin hélt áfram að funda og hélt auk þess almenna fundið í Olís og Útvegsbændafélaginu þar sem tillagan hlaut á báðum stöðum góðar undirtektir.

Á fundi í Útvegsbændafélagi Vestmannaeyja 2. október 1946 var kosið í undirbúningsnefnd að stofnun Fiskvinnslustöðvar útgerðarmanna í Vestmannaeyjum. Eftirtaldir aðilar voru í stjórn; Jóhann Sigfússon, Helgi Benediktsson, Ársæll Sveinsson, Guðlaugur Gíslason og Ólafur Á. Kristjánsson. Í varastjórn voru Sighvatur Bjarnason og Ragnar Stefánsson.

Helga Benediktssyni, Guðlaugi Gíslasyni og Ragnari Stefánssyni var falið að semja frumdrög að félagslögum. 1. nóvember 1946 lögðu þeir fram uppkast að lögum félagsins og er upphaf þeirra á þessa leið: "Félagið heitir Vinnslu- og sölumiðstöð fiskframleiðanda. Heimili þess og varnarþing er í Vestmannaeyjum. Félagið er samlagsfélag og takmarkast ábyrgð félagsmanna eftir þátttöku þeirra, svo sem síðar segir."

Stofnfundur

30. desember 1946 er haldinn stofnfundur Vinnslu- og sölumiðstöðvar fiskframleiðenda í Vestmannaeyjum í Samkomuhúsi Vestmannaeyja. Í fyrstu stjórn voru kjörnir eftirtaldir; Jóhann Sigfússon, Helgi Benediktsson, Guðlaugur Gíslason, Ársæll Sveinsson og Ólafur Á. Kristjánsson og til vara Sighvatur Bjarnason og Ragnar Stefánsson.



Heimildir

  • Stefán Runólfsson. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1986.