Vinir Ketils bónda

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. febrúar 2006 kl. 12:18 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. febrúar 2006 kl. 12:18 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Smáleiðr.)
Fara í flakk Fara í leit
Vinir Ketils bónda í góðu glensi með grínaranum Jóni Gnarr árið 2000.

Vinir Ketils Bónda er félagsskapur ungra manna í Vestmannaeyjum sem settur var á laggirnar árið 1998. Upphaflega var félagið stofnað í kringum búningakeppni á Þjóðhátíð í Herjólfsdal en félagsmenn hafa löngum lagt mikinn metnað í glæsilega búninga á hátíðinni. Þá hefur skapast sú hefð hjá félagsmönnum á gamlársdag að búa til merki félagsins með kertum í hlíðum Helgafells og tendra þau. Segja má að félagið sé léttur og leikandi karlaklúbbur af bestu gerð. Forseti félagsins árið 2005 er Helgi Ólafsson.


Heimildir