Tindastóll
Húsið Tindastóll við Sólhlíð 17. Það var reist árið 1926 af Kristjáni Linnet. Í Tindastóli voru lengi vel skrifstofur bæjarfógeta á neðstu hæð en íbúðin bústaður bæjarfógeta og síðar sýslumanns. Húsið er ekki lengur bústaður sýslumanns.
Á lóð Tindastóls er höggmynd er heitir Freymóður, gerð af Páli Guðmundssyni listamanni frá Húsafelli, árið 1999, til minningar um Freymóð Þorsteinsson, sem var fulltrúi bæjarfógeta frá 1942-1963 og bæjarfógeti frá 1963-1973.
- Eigendur og íbúar hafa verið:
- Sigfús M Johnsen og Jarþrúður Pétursdóttir.
- 1949-1950 Gunnar Þorsteinsson bæjarfógeti.
- 1953 Torfi Jóhannsson og Ólöf Jónsdóttir og sonur þeirra Kristján Torfason
- 1963-1964 Freymóður Þorsteinsson og Ragnheiður Henríetta Elísabet Þorsteinsson.
- 1974 Kristján Torfason og Sigrún Sigvaldadóttir og börn þeirra Ólöf Hrefna Kristjánsdóttir, Guðríður M Kristjánsdóttir og Torfi Kristjánsson f. 1976.
- 1992 Georg Kristinn Lárusson og Guðrún Hrund Sigurðardóttir og börn þeirra Hildur Georgsdóttir og Lárus Gauti Georgsson.
- 2001 Sigurður Hjörtur Kristjánsson og Ragnhildur Magnúsdóttir og börn þeirra Helga Hjartardóttir, Kristján Helgi Hjartarson, Hjörtur Ari Hjartarson og Helgi Björn Hjartarson.
- Kristinn Guðmundsson og Birgitta Karen Guðjónsdóttir og börn þeirra Svava Kristinsdóttir, Andri Kristinsson og Bjarki Kristinsson.
- Þröstur Johnsen.
Heimildir