Magnús Karl Guðmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. október 2013 kl. 21:02 eftir Glumur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. október 2013 kl. 21:02 eftir Glumur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Karl Guðmundsson

Magnús Karl Guðmundsson, Reykholti, fæddist í Reykjavík 4. maí 1903 og lést 10. maí 1993. Karl fór ungur til Eyja með foreldrum sínum, Guðmundi Magnússyni f. 5.09.1877 - d. 21.09.1959 trésmíðameistara og Helgu Jónsdóttur f. 19.01.1874 - d. 19.10.1947.

Sjómennsku hóf Karl á unga aldri og formennsku hóf hann á Skúla fógeta. Síðar var hann meðal annars með Tjald og Óðinn.

Karl var giftur Unni Jónsdóttur og áttu þau þrjá syni.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.