Michael Marius Ludvig Aagaard

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. janúar 2006 kl. 11:02 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. janúar 2006 kl. 11:02 eftir Inga (spjall | framlög) (flokkur fólk)
Fara í flakk Fara í leit

Michael Marius Ludvig Aagaard var sýslumaður Vestmannaeyja frá 1872 til ársins 1891. Hann var danskur að ætt. Michael kom til Vestmannaeyja einhleypur maður, en kvæntist árið 1874, danskri konu af frönskum ættum og hún fluttist til Eyja vorið 1875.

Þau bjuggu fyrst í húsi sem hét Nöjsomhed. Seinna fluttust þau í húsið Stafholt sem stendur við Víðisveg 7. Eftir dvölina þar fluttust þau svo í gömlu Uppsali sem stóðu við Vestmannabraut 51 og bjuggu þar þangað til þau fluttust að Vilborgarstöðum.

Michael var veitt fógetaembættið í Fanö á vesturströnd Jótlands árið 1892.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.