Blái borðinn
Blái borðinn (1936).
- Fjörefnaríkur er blái borðinn
- betri en nokkurt smjör,
- eykur hreysti og fjör.
- Ástin er varla örugg til lengdar,
- ölið er freyðandi tál,
- en hitt er víst, að vítamínin
- verma hug bg sál.
- Gott er ölið — gleymist bölið,
- glaðværðin er býsna mikil orðin,
- og ég sjálfur — orðinn hálfur,
- en alltaf er hann beztur blái borðinn.
- Söngurinn, ástin og ölið
- örva og kæta sál.
- Í þúsundatali við þjórum
- þjóðhátíðarskál.
- Gott er ölið, gleymist bölið,
- — en alltaf er hann beztur blái borðinn.