Guðjón Jónsson (Sandfelli)
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Guðjón Jónsson“
![](/images/thumb/6/6a/KG-mannamyndir_3396.jpg/250px-KG-mannamyndir_3396.jpg)
Guðjón Jónsson, Sandfelli, var fæddur 24. apríl 1873 og lést 1. júlí 1943.
Eiginkona hans var Ingveldur Unadóttir.
Hann kom með fjallaskip til Vestmannaeyja 1898 og hafði formennsku á því þar til mótorbátarnir komu til sögunnar. Þá keypti hann mótorbát ásamt fleirum og hét sá Ingólfur. Frá 1907 og til 1940 var hann óslitið formaður.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.