Einar Sveinn Jóhannesson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. nóvember 2005 kl. 22:01 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. nóvember 2005 kl. 22:01 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Einar Sveinn Jóhannesson fæddist 13. apríl árið 1914 og lést 26. september 1994. Einar var skipstjóri á Skaftfellingi, VE-33 á árunum 1951—1954. Hann var síðar með Vonarstjörnuna VE sem aðallega var í flutningum milli Þorlákshafnar og Eyja, mest mjólkurflutningum og var skipið stundum nefnt Mjólkurstjarnan. En lengst af var Einar skipstjóri á Lóðsinum og oft kenndur við það skip.

Hann byggði húsið að Faxastíg 45 og bjó þar til æviloka.

Loftur Guðmundsson samdi Formannavísur og hljóðar vísan um Einar á þá leið:

Einar að sækja unnarhót
ekki er á Svanhólm tregur,
glaður og reifur golu mót
glottir,— og þorstinn dregur.

Brynjólfur Einarsson bátasmiður samdi einnig formannavísu um Einar, að beiðni hans, svohljóðandi:

Einn sem hér af öðrum ber
aflamaður mikill,
oft á sjó í illu fer
Einar Sveinn Jóhannesson.