Gullrót
Félagið Gullrót var stofnað af félögunum Óðni Hilmissyni og Óskari Kjartanssyni til að halda utan um allar þær unglingahljómsveitir sem stofnaðar hafa verið í Vestmannaeyjum og hjálpa þeim að koma sér undir fótum. Einnig hefur Gullrót staðið fyrir fjölda mörgum tónleikum og sér um að halda úti Fiskiðjunni sem æfingarhúsnæði fyrir þessar hljómsveitir.