Lönd-vestri
Húsið Lönd-vestri var byggt árið 1909 af Friðriki Svipmundssyni og stóð við Landagötu 11. Einnig nefnt Stóru-Lönd. Friðrik, sem var mikill aflamaður og sjósóknari, var kvæntur Elínu Þorsteinsdóttur og voru bæði ættuð úr Mýrdalnum. Mikil reisn og myndarskapur þótti einkenna heimilið að Löndum. Húsið fór undir hraun.