Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk
Fara í leit
- Hefjum nú, bræður, vorn hátíðarsöng;
- hátt er til veggja í salnum
- ungir og gamlir í iðandi þröng
- allir sér skemmta í dalnum.
- Allir inn í dal þér ungra sveina val,
- og ekki mega stúlkurnar sér gleyma.
- og ekkert getur hugann betur hresst.
- Kyrjum gleðilag á Köldubraut í dag,
- þótt kuldalegt sé nafnið, það ei sakar.
- Brosir hæð og laut nú burt með hverja þraut
- og bregðum oss með söng á ástarbraut.
- Þá minnkar ekki fjörið, þegar dagsins birta dvín
- og dalinn sveipar kvöldið húmsins klæði.
- Og fagurt er um lágnættið, er bálið bjartast skín
- í brekkunum þó minnki heldur næði.
- Allir inn í dal, þér ungra sveina val,
- og ekki mega stúlkurnar sér gleyma.
- Fagra tjaldaþröng með fána á hverri stöng
- nú fyllum vér með þjóðhátíðarsöng.
- Lag: Oddgeir Kristjánsson
- Texti Árni úr Eyjum
Lag:Þjóðhátíðarlög