Hve dátt er hér í dalnum

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. júní 2006 kl. 09:09 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júní 2006 kl. 09:09 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Þjóðhátíðarlag
1949 1950 1951
Hve dátt er hér í Dalnum inni,
er dagur lýkur göngu sinni
og rökkrið hylur rósavanga,
ó, rómantískt er hér að ganga
um götur þær er gekk ég forðum
og gladdi þig með ástarorðum.
þá kveikir Siggi kyndla sína
í kynjabirtu fjöllin skína!
Á bálið vörpum sorg og sút,
syngjum meðan brennur
­dönsum villt og drekkum út,
dagur þar til rennur.
Hve dátt er hér í dalnum inni,
er dagur lýkur göngu sinni ­
og þegar ljómar bálið bjarta,
þá birtir yfir hverju hjarta.
Lag: Oddgeir Kristjánsson
Texti: Ási í Bæ