Hof
Húsið Hof var byggt árið 1906 af Magnúsi Jónssyni sýslumanni og stóð við Landagötu 26. Var þetta timburhús ofan á hlöðnum kjallaragrunni. Voru veggir kjallarans sérlega þykkir og var mikil steypa á milli steinanna. Yfirsmiður var Magnús Ísleifsson í London og var þetta fyrsta húsið sem Magnús sá um smíði á.
Frá upphafi var Hof aðsetur sýslumanns en eftir að Vestmannaeyjar fengu kaupstaðarréttindi 1918 var Hof aðsetur bæjarfógeta til ársins 1924, en þá var aðsetur bæjarfógeta flutt að Tindastóli.
Eftir að aðsetur bæjarfógeta var flutt úr Hofi keypti Þorlákur Sverrisson húsið. Bjó Þorlákur að hofi til dángægurs árið 1943 og bjó kona hans, Sigríður Jónsdóttir, þar ásamt tveimur dætrum þeirra til ársins 1960, þegar Birgir R. Ólafsson keypti það.
Húsið fór undir hraun.