Mandalur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. nóvember 2005 kl. 13:58 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. nóvember 2005 kl. 13:58 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Mandalur

Húsið Mandalur stóð við Njarðarstíg 18.

Við Mandal var kennd Gyðríður Stefánsdóttir, Gyða í Mandal, móðir þeirra Stefáns Árnasonar, yfirlögregluþjóns og Árnýjar Sigurðardóttur (Nýju í Suðurgarði). Gyða var fædd árið 1863 og lést 88 árum síðar, árið 1951.

Húsið var keypt af Ísfélaginu fyrir verbúðir, en var svo rifið.