Kafhellir
Í Hænu er hellir sem kallast Kafhellir og fær hann nafnið frá því að ekki er hægt að komast í hann nema þegar lágsjávað er. Þegar komið er inn í hann hækkar hvelfingin en þó er hann allur fremur lágur til loftsins og stuttur, en mjög djúpur. Ljósið fellur einkennilega á hellisloftið, veggina og sjóflötinn inni í hellinum. Það er útaf því að það er neðansjávarop í vesturendanum. Hellirinn opnast einnig í norðvestur og skín mikil litadýrð þegar síðdegissólin skín inn. Á veggjum hellisins er lifrauður þaragróður sem gefa honum tofrandi og undarlegan bjarma. Menn eru sammála um að hann sé fegurstur í síðdegissólinni.
Heimildir
- Árbók F.Í. 1948