Takið eftir því
- Að standa sem hetjur
- og starfa eins og lífið býður
- sé stefna vor allra,
- því tíminn frá oss líður.
- Hvert sinn, er morgunn skín við skí
- sé skylda dagsins ávallt ný
- takið eftir því.
- En gleymum þó eigi,
- að gleðin hún er lífsins stjarna,
- sem gefur oss yndi
- og ljóma slær á vegi farna.
- Í Herjólfsdal með horskum gný
- vér höldum þjóðhátíðarfrí,
- já takið allir eftir því.
- Lag: Oddgeir Kristjánsson
- Texti: Árni úr Eyjum