Karólína Sigurðardóttir
Karolína fæddist þann 9. október 1899 að Vallarhjáleigu í Hvolhreppi. Hún lést þann 10. ágúst 1989 á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum. Karolína var dóttir hjónanna Geirlaugar Guðmundsdóttur, frá Steinum undir Eyjafjöllum og Sigurðar Unasonar, sjómanns.
Karolína giftist Jóni Sigurðssyni, Jónssonar frá Syðstu Mörk undir Eyjafjöllum. Karolína og Jón byggðu sér húsið Ártún við Vesturveg 20 en byggðu svo síðar húsið nr. 73 við Vestmannabraut, eftir að hafa misst Ártún í hendur „óvandaðs manns“ eins og Sigurður Diddi pabbi komst að orði í minningargrein um Kristínu systur sína. Á Vestmannabrautinni bjuggu Jón og Karolína til dánardægurs.
Karolína og Jón eignuðust fjögur börn, 1) Geirlaugu, f. 20. júní 1923 - d. 31. maí 1995, 2) Kristínu, f. 12. janúar 1926 - d. 9. ágúst 2004, 3) Margréti, f. 9. október 1931 og Sigurð Didda pabba, f. 24. júlí 1940.