ÍBV
ÍBV
Undanfari og upphaf
Eins og nafn Íþróttabandalags Vestmannaeyja gefur til kynna er þetta bandalag margra mismunandi hópa. Mörg félög höfðu verið í Eyjum bæði fyrir stofnun bandalagsins og einnig hafa mörg félög starfað í gegnum árin samhliða Í.B.V.. Félögin Þór og Týr höfðu verið starfandi frá öðrum og þriðja áratug 20. aldarinnar og hvatt hvort annað áfram með stöðugri samkeppni. Þessi félög ásamt öðrum sértækari höfðu haft með sér félög sem kepptu á landsmótum. Hétu félögin Íþróttaráð Vestmannaeyja, Í.R.V. og undir stjórn Einars ríka var keppt fyrir hönd KV á landsmótum. Á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar varð hnignun í íþróttamálum í Eyjum vegna þess að ungt fólk fékk vinnu hjá hernum og við síldveiðar á Norðurlandi. Með nýjum íþróttalögum var óskað eftir því að samband íþróttafélaga í Vestmannaeyjum væri stofnað. Hinn 6. maí 1945 var stofnað bandalag íþróttafélaga í Vestmannaeyjum, Íþróttabandalag Vestmannaeyja. Félögin höfðu eitthvað keppt í eigin nafni upp á meginlandinu fyrir stofnun bandalagsins en nú skyldi keppa í nafni ÍBV utan héraðs.
Fyrsta sumarið (árið 1945) sem héraðssamband ÍBV var við stjórnvölin var vel skipulögð starfsemi og vissu félögin strax um vorið hvenær þau ættu að sjá um keppnir hvort sem er í knattspyrnu, handknattleik eða frjálsum íþróttum. Ekki var keppt í sundi þetta sumar því viðgerðir stóðu yfir á lauginni en strax umhaustið hófst sundkennsla hjá Friðriki Jessyni.
Sagan
Verðlaun og meistarar
Stjórn
Formenn
- Vigfús Ólafsson 1945 og 1950
- Sigurður Finnsson 1946-1948 og 1954-1958
- Gunnar Stefánsson 1949
- Jón Scheving 1951-1953
- Hrólfur Ingólfsson 1959
- Valdimar Kristjánsson 1960-1961
- Sigfús J. Johnsen 1962-1963
- Stefán Runólfsson 1964-1966 og 1968-1975
- Guðmundur Guðmundsson 1967
- Jóhann Pétur Andersen 1976-1978
- Óskar Sigurpálsson 1979-1981
- Gísli Magnússon 1982-1983
- Friðrik Óskarsson 1984-1985
- Guðmundur Þ. B. Ólafsson 1986-1988
- Ómar Garðarsson 1989-1992
- Sólveig Adólfsdóttir 1993-
- Óskar Freyr Brynjarsson
- Jóhann Pétursson
Starf í dag
Heimildir
- Þorsteinn Gunnarsson. 50 ára afmælisrit ÍBV. 1995. Vestmannaeyjar: ÍBV.