Dvergasteinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. júlí 2005 kl. 10:46 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. júlí 2005 kl. 10:46 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Dvergasteinn (áður Brandshús) stóð við Heimagötu 7a. Það hýsti Barnaskóla Vestmannaeyja á árunum 1884-1904 og var því jafnan kallað Gamla Skólahúsið. Eftir að Eiríkur Ögmundsson flutti húsið nefndi hann það Dvergastein, eftir Dvergasteini við Seyðisfjörð.

Árið 1906 stofnsetti Edvard Fredriksen bakarí í húsinu. Ekki var bakaríið langlíft í húsinu því einungis eftir fjögurra mánaða bakstur kviknaði í bakaríinu og það brann nokkuð. Allt sem brann var óvátryggt og því var bakaríið ekki starfrækt lengur.

Dvergasteinn var hlaðinn úr móbergi úr Heimakletti árið 1883 og voru steinarnir límdir saman með kalki. Húsið fór undir hraun í gosinu, líklega þann 26. mars, en þá fóru húsin Godthaab, Brydehus og gamla sundlaugin undir hraunflæðið.