Blik 1938, 2. tbl./Í dag er vor.
- Í DAG ER VOR.
- Í dag er sólskin í sveitum,
- er sigrandi völdin fær,
- og drottnandi vættur vorsins
- á viðkvæma strengi slær.
- Í dag er söngur í sálu,
- og seiðandi þrár í hug.
- — Hraðfara svanir hugans
- hefja sitt vængjaflug.
- Í dag er sólskin í sveitum,
- Í dag er tign yfir tindum,
- er töfrar hvern byggðarmann.
- Og norn hinna örvandi óska
- örlagavefi spann.
- Vorannir bóndans bíða,
- og bjartsýni á hann enn.
- Hann ætlar að drýgja dáðir
- og draumar hans rætast senn.
- Í dag er tign yfir tindum,
- Í dag er himinninn heiður
- og helgi í sálu manns.
- — Í dag er vorið að völdum
- og vakir í byggðum lands.
- — Því burtu er vetur vikinn
- með vald sitt og ægimátt.
- — Horfinn í fyrnsku og fjarska.
- — Hann flýði í norðurátt.
- Í dag er himinninn heiður
- Í dag er ljóðandi lækur,
- er lýður um gróinn völl;
- sem kastaðist fram af klettum,
- og kvaddi hin bláu fjöll,
- — og hafði ólgandi útþrá
- eignast í vöggugjöf.
- — Ljóðandi fer hann og finnur
- í fjarskanum hafsins gröf.
- Í dag er ljóðandi lækur,
- Í dag er ég draumsins sonur.
- Í dag er mér létt um spor.
- — Í dag er ég frjáls úr fjötrum
- og fagna þér — nýja vor.
- — Frjálsbornar vermast og vaxa
- vonir, sem hjarta mitt ól.
- — Hraðfara svanir hugans
- hefja sig — móti sól.
- Í dag er ég draumsins sonur.