Blik 1938, 2. tbl./Vorsöngur.

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. október 2009 kl. 14:39 eftir ZindriF (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. október 2009 kl. 14:39 eftir ZindriF (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
VORSÖNGUR.
Lag: Glad så som Fogeln i Morgenstunden.
Vorið er komið, af vetrardvala
vekur það sóley og fífil á hól,
angandi smáblóm um iðgræna bala
augunum depla mót skínandi sól.
Léttvængjað fiðrildi lynginu í
lifnar á ný.
Vorsólar bjarmi á bylgjunum ljómar.
Bjargfugla kliðurinn glaðlega hljómar
frá skuggblárri skor.
Ó, þú dýrðlega draumfagra vor.
Ó, þú draumfagra vor.
Sigurbjörn Sveinsson.