Blik 1936, 1. tbl./Bindindi - Starf
BINDINDI — STARF
Eftir síra JÉS A. GÍSLASON
M E Ð A L hinna mörgu ásakana, sem andstæðingar banns og bindindis bera á bindindismenn, sérstaklega Good-Templara, er það, að þeir séu ekki nógu ötulir, framsæknir og árvakrir í starfinu. Þeir gætu komið svo miklu meira til vegar í áhugamálum þeirra, ef þeir nenntu að vinna. Starfsaðferðir þeirra séu þunglamalegar og rangar. Þeir tali mikið, haldi margar ræður, gagnslausar auðvitað og þrungnar ofstæki. Þetta og ýmislsgt fleira þessu líkt verða bindindismenn að hlusta á frá munni þeirra, sem stefnuna vilja feiga, eða að minnsta kosti vilja ekki láta hana komast lengra áleiðis en góðu hófi gegnir. Það skal játað, að við bindindismenn erum ekki nægilega duglegir, að við vinnum minna en æskilegt er, þessu þjóðþrifamáli til eflingar. Til Þess eru margar ástæður, en sú fyrst og fremst, að við allflestir erum bundnir öðrum störfum til lífsframfæris sjálfum okkur og okkar nánustu, og verða því þessi störf — bindindisstarfið — aukastörf. Óskiftir geta fæstir gefið sig að því, til þess skortir fé, því að allflestir eru þessir menn fátækir. Bindindishreyfingin er upphaflega borin fram af þeim mönnum, sem ekki verða með auðmönnum taldir.
En um leið og það er játað, að við erum ekki nægilega duglegir, skal það tekið fram, að það er þó sérstaklega eitt atriði í þessu máli, sem verst hefir farið með málstað okkar, og það er það, að við höfum ekki verið nógu séðir gagnvart þeim, sem viljað hafa stefnuna feiga, sbr. hvernig smeygt var t.d. inn konsúlabrennivíninu, læknabrennivíninu o.fl. auðvitað til þess að fleyga málið og komn því á kné. Og þá eru það bindindisræðurnar, sem andstæðingarnir minnast svo oft á, svo sem væru þær spor í öfuga átt. Þetta er auðvitað af sama toga spunnið af þeirra hálfu, og ber auðvitað að líta svo á það. Sjálfir nota þeir háværar ofstækisræður og ritstörf mikil, máli sínu til framdráttar. Það þykir þeim sjálfsagt, en ef bindindismenn rita eða ræða sínu máli til styrktar, þá er það að þeirra dómi bindindismálinu til óþurftar. Þeir kysu auðvitað helzt þögn af okkar hálfu, því að þá yrði aðstaða þeirra betri til að koma hugsjónum sínum í framkvæmd. Þetta er svo bersýnileg mótsögn, að um þenna flutning málsins þarf ekki að ræða. Því að það er vitanlegt, að í hvaða máli sem er, hafa góðar ræður á öllum tímum orðið hverju máli hinn mesti stuðningur, og er notað meira en nokkuð annað um allan heim, á öllum tímum fyrr og síðar, málum til framdráttar og sigurs. Nei, ræðurnar okkar bindindismanna eru eflaust of fáar, fyrst anstæðingarnir telja þær of margar.
Í þessu sambandi er vert að minna á það, sem hinn heimsfægi ameríski prédikari, Billy Sunday, sagði 1917:
„ Á hvítasunnuhátíðinni snerust 3000 við eina prédikun. Nú tekur það venjulega 3000 prédikanir að snúa einum brennivínsháðfugli."
Við skulum svo líta á starf hinna vínelsku. Þar verða víst allir sammála um, að þeirra starf er mikið. Það er mikið starf á bak við það, að lyfta öðru eins Grettistaki og því, að fá smáþjóð til þess að auka vínnautn sína á einu ári um 2 — tvær milljónir króna eða úr 11/2, milljón upp í þrjár og hálfa milljón, eins og átt hefir sér stað hér á landi síðan bannlögin voru afnumin (frá 1. febrúar 1935 til l.febrúar 1936). En þetta starf er svo mikið, að hetjurnar eru orðnar hræddar við afleiðingarnar, jafnvel hræddar við sinn eigin skugga, þora nú hvergi að koma fram til andsvara, og það þótt á þá sé hrópað. Jafnvel rödd prófessorsins í heilbrigðisfræði háskólans er þögnuð, röddin, sem eitt sinn í Ríkisútvarpinu barði sér á brjóst út af því, að ekki væri hægt að fá nógu ódýrt brennivín, svo að fátækir menn gætu keypt það og orðið þess aðnjótandi. Góð og heilsusamleg kenning! Brjóstumkennanlegir heilbrigðisfræðingar!