Arnardrangur
Húsið Arnardrangur var byggt árið 1928 og stendur við Hilmisgötu 11.
Mikil starfsemi hefur verið í húsinu í gegnum árin. Tónlistarskóli Vestmannaeyja var í skólanum um árabil áður en hann flutti í Gagnfræðaskóla-húsið við Vesturvegur
Í Arnardrangi fer fram starfsemi Rauða Krossins og Lions-klúbbsins. Rauði Krossinn er með ýmis konar námskeið ásamt venjulegri hjálpar- og aðstoðarstarfi. Þessi félög hafa staðið að miklum breytingum og endurnýjungum og er húsið orðið allt hið myndarlegasta. Gamli stíllinn fær þó að njóta sín þrátt fyrir miklar endurbætur.