Carl Ferdinand Lund
Carl Ferdinand Lund var læknir í Vestmannaeyjum frá 1828 til 1831. Hann var danskur að ætt og úskrifaðist frá Kaupmannahafnarháskóla 1818 með skurðlækningar sem sérgrein. Fyrstu árin starfaði hans sem læknir á Nykoping á Sjálandi. Síðan í ársbyrjun 1828 fékk hann á skipun að verða fyrsti læknir Vestmannaeyinga sem bjó í sjálfum Vestmannaeyjum. Hann bjó og vann í eyjum til dauðardags 7. desember 1831. Var hann vel látinn af öllum almenningi.
Heimildir
- Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.