Kafhellir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. júlí 2005 kl. 09:13 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. júlí 2005 kl. 09:13 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Vestmannaeyjar frá Kafhelli.

Í Hænu er hellir sem kallast Kafhellir og fær hann nafnið því ekki er hægt að komast í hann nema lágsjávað er. Þegar komið er inn í hann hækkar hvelfingin en þó er hann allur fremur lágur til loftsins og stuttur, en mjög djúpur. Ljósið fellur einkennilega á hellisloftið, veggina og sjóflötinn inni í hellinum. Það er útaf því að það er neðansjávarop í vesturendanum. Hellirinn opnast einnig í norðvestur og skín mikil litadýrð þegar síðdegissólin skín inn. Á veggjum hellisins er lifrauður þaragróður sem gefa honum tofrandi og undarlegan bjarma. Geta menn verið sammála að hann sé fegurstur í síðdegissólinni.


Heimildir

Árbók F.Í. 1948