Arnarholt
Húsið Arnarholt við Vestmannabraut 24. Upphaflegt hét húsið Stakkahlíð, eftir Stakkahlíð í Loðmundarfirði, en þegar Sigurður Sigurðsson, apótekari frá Arnarholti, keypti húsið nefndi hann það Arnarholt. Þar var Apótek rekið í marga áratugi en lokaði í júlí 2006. Húsið var byggt árið 1905 af Guðjóni Þorvaldssyni.
Síðari endurbætur
- 1950 á íbúðarhúsi
- 1956 á apóteki
Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu
- Guðjón Þorvaldsson formaður
- Þorkell Valdimar Ottesen 1911-1912
- Sigurður Sigurðsson lyfsali 1913
- Jóhannes Sigfússon
- Aase Sigfússon
- Kristján Hallgrímsson
- Sigurjón Jónsson
- Hanna María Siggeirsdóttir
- Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir
Heimildir
- Vestmannabraut. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.