Heimir
Húsið Heimir við Heiðarveg 1. Byggt 1943 og stækkað 1968. Magnús Guðbjartsson byggði húsið undir verslun 2 hæðir verslunin Heimir. Helgi Benediktsson kaupir húsið, er þar með rekstur nýlenduvörubúðar.
Notkun
- Mjólkurbarinn
- billjardstofa
- húsgagnaverslun
- raftækjaverslun
Skattstofan var þar til húsa eftir gos til ca 1988, þar til hún flytur á Heiðarveg 15. Pálmi Lorenzson kaupir eftir gos, Gestgjafinn, húsið stækkað til austurs um 1980. Skemmtistaðurinn Skansinn var opnaður um 1980.
Verðbúðir á 3. og 4. hæð um tíma. Stýrimannaskólinn var þar einnig með heimavist. Páll Helgason rak fyrstur gistiheimilið, síðan Pálmi Lorenzson og Páll Helgason og synir. Gistiheimilið Heimir er nú í eigu Þorkels Húnbogasonar og konu hans.
Eigandi af norðurenda jarðhæðar í dag er Gísli Valur Einarsson frá Brekku.
Heimildir
- Heiðarvegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar: Haust 2006.