Sigurður Gunnarsson (Hólmi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júlí 2012 kl. 14:39 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júlí 2012 kl. 14:39 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Sigurður Gunnarsson


Sigurður

Sigurður Gunnarsson frá Hólmi í Landeyjum fæddist 18. september 1888. Til Vestmannaeyja fluttist hann árið 1908. Fyrstu árin vann hann við málarastörf því hann var málari að iðn. Árið 1915 lét Sigurður smíða 5 tonna bát sem Huginn hét og átti hann að vera dráttarbátur inn og út höfnina, því bæði millilandaskip og strandferðaskip lögðust þá á ytrihöfn. Sigurður var einnig tré- og járnsmiður.

Sigurður byggði hús við Miðstræti 19 og nefndi það Hólm eftir æskuheimili sínu í Landeyjum.

Sigurður drukknaði í Vestmannaeyjahöfn 16. janúar 1917.

Myndir


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.