Guðni Grímsson (formaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júlí 2007 kl. 11:05 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júlí 2007 kl. 11:05 eftir Daniel (spjall | framlög) (Guðni Grímsson færð á Guðni Grímsson (Herjólfsgötu))
Fara í flakk Fara í leit
Guðni Grímsson

Guðni Grímsson fæddist 15. janúar 1904 og lést 9. maí 1996. Hann bjó á Herjólfsgötu 14.

Hann var skipstjóri og útgerðarmaður með bátinn Maggý.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Guðna:

Guðna telja Gríms ég má
græðir stundar téður,
marinn þegar mylur sá,
Maggý tíðum hleður.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Grímsson ég Guðna ríma
greindan formanninn reyndan.
Maggý er verjans vagga,
víðir þá eikju hýðir.
Fisk dregur mest án miska,
marinn þó dekkið kari
hríðar í hreggi stríðu,
hræðist sízt skatinn græði



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.