Edvin Jóelsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júní 2007 kl. 11:42 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júní 2007 kl. 11:42 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Edvin Jóelsson/Gói á Kirkjubæ/Gói í Svanhól.

Edvin Jóelsson fæddist 2. júní 1922 og lést 25. mars 1971. Hann bjó á Urðavegi 17 og Hásteinsvegi 6, Kiðjabergi.

Edvin var formaður á mótorbátnum Álsey. Hann var skipstjóri á Skaftfellingi á árunum 1955-57.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Edvin:

Jóels sonur Áls- með ey
Edvins gegnir heiti,
dregur í hið forna fley
fisk úr djúpa reiti.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Þriðja skal njóta niðja
nefna son Jóels, gefna.
Edvin sá heitir svinnur,
seggur, er Skafta leggur,
hríð út í storma stríða,
straumur þó æstur kraumi.
Föng sækir fírinn löngum
fíkinn til Reykjavíkur.



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
  • Myndasafn Fanneyjar Ármannsdóttur.