Guðjón Vigfússon (skipstjóri)
Guðjón Vigfússon fæddist 15. september 1902 og lést 26. nóvember 1996. Kona hans hét Sigurrós Sóley Sigurðardóttir. Þau bjuggu á Hásteinsvegi 49. Guðjón byggði Hásteinsveg 49.” Húsið var fokhelt um ármótin 1944-´45, og því var lokið vorið 1946 Kom 1941 til Vestmannaeyja stýrimaður á Sæfellinu og varð seinna skipstjóri á því. Var skipstjóri á b/v Sævari VE 102 1947-1948. Hafnarstarfsmaður og lóðs í Eyjum 1949-50. Flutti til Reykjavíkur 1951. Stýrim.á Laxfossi og skipstjóri á Akraborg. (Sjá bók hans, “ Sýður á keipum.”)
Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannavísu um Guðjón:
- Guðjón skipstjórn gætnisprúð
- við grimmlund hafs og manna
- stýrir fornri Sæfellsúð
- um sollna vegi hranna.
Heimildir
Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum.