Guðjón Valdason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. desember 2008 kl. 11:32 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. desember 2008 kl. 11:32 eftir Inga (spjall | framlög) (Gísli Eyjólfsson br.)
Fara í flakk Fara í leit
Guðjón á leið til vinnu.

Guðjón Valdason, Dyrhólum, fæddist 4. október 1893 að Steinum undir Eyjafjöllum og lést 17. ágúst 1989. Guðjón fór 14 ára gamall til Vestmannaeyja með móður sinni og stjúpföður, Elínu Pétursdóttur og Bergi Jónssyni. Guðjón kvæntist Margréti Símonardóttur og á meðal barna þeirra var Bergur Elías.

Árið 1923-1924 byrjaði Guðjón formennsku á Garðari I. Eftir það var Guðjón meðal annars með Gottu, Von EA og Kap sem hann var með til ársins 1955 eða í 21 vertíð. Þá kaupir Guðjón Kap II og var með hann 1955-1961 þegar hann hættir formennsku.

Óskar Kárason samdi formannavísu um hann:

Færir Kap á grænan gnið
Guðjón aldinn Valda,
þó að tíðum súðar svið
sargi baldin alda.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Höld Guðjón veit ég Valda
valda með Kap út halda,
djúps, þó að sylgjur súpi
súðin í brima úða.
Gjöld fær úr ægi aldinn,
aldan þó reisi faldinn.
Bindur við kærleik kindur,
knái skipstjórinn, hái.



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum.