Björk
Húsið Björk er við Vestmannabraut 47. Ásgrímur Eyþórsson, föðurbróðir Ásgeirs Ásgeirsson, forseta, byggði húsið árið 1933. Í kjallara hússins var verslun um tíma. Árið 2006 býr Sigríður Mjöll Einarsdóttir í húsinu.
Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu
- Ásgrímur Eyþórsson
- Gissur Ó Erlingsson
- Haraldur Þorkelsson
- Svava Guðmundsdóttir
- Óskar Arason
- Guðný Bjarnadóttir
- Sigríður Mjöll Einarsdóttir
Heimildir
- Vestmannabraut. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.