Goðaland

Húsið Goðaland við Flatir 16, var byggt árið 1922. Guðmundur Magnússon byggði húsið og bjó þar með eiginkonu sinni, Helgu Jónsdóttur, til 1959.
Guðmundur rak trésmíðaverkstæði sitt í skúr við hlið Goðalands, Flötum 18, sem Garðar Björgvinsson rak svo áfram.
Manntal 1960 segir um húsið:
Einbýlishús, timburhús. Ein íbúðarhæð, kjallari með einu íbúðarherbergi og ris. Miðstöðvarkerfi í húsinu, olía notuð til upphitunar.
Húsið fær rafmagn frá almenningsrafveitu og er ekki með einkarafstöð. Húsið hafði þó einkaveitu hvað varðar hvort vatn væri leitt í húsið. Skolpleiðsla var frá húsinu.
Íbúðin hafði fjögur herbergi, og húsið alls fimm herbergi. Íbúðin hafði eigið eldhús og eldað var með rafmagni. Rafmagnsískápur var einnig í íbúðinni. Vatnssalerni einnig. Síðast er nefnt að bæði baðker og steypibað sé í húsinu.
Árið 2006 bjuggu í húsinu Hafsteinn Guðmundsson og Theódóra Anny Hafþórsdóttir. Húsið var rifið þann 3. nóvember 2021.

