Björgvin Guðmundsson (Viðey)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. september 2006 kl. 13:32 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. september 2006 kl. 13:32 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Smáleiðr.)
Fara í flakk Fara í leit

Björgvin Guðmundsson fæddist 15. maí 1915 og lést 9. mars 1999. Hann bjó í húsinu Viðey við Vestmannabraut 30. Seinni ár ævi sinnar bjó hann í Reykjavík en var jarðsettur í Vestmannaeyjum.

Björgvin var formaður á Ársæli VE.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Björgvin:

Ársæl báru afla klár
ýtir gniðar meyja,
býsna hár og brima knár
Bjöggi Viðar-eyjar.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Björgvin þétt fiski fargar
fírinn Guðmunds órýri,
baðar Ársæl í æði
öldunnar hríðar köldu.
Sterklegur áfram arkar
aldrei með mála skvaldur,
geðugur grérinn téði
gætir að formanns sæti.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.