Þorleifur Guðjónsson
Þorleifur Guðjónsson bjó á Reykjum. Leifur, eins og hann var jafnan kallaður, var formaður með mótorbátinn Glað.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Þorleif:
- Reykja-Leifur lagar far
- leggur nú í öldur.
- Glaður jafnan gæfu bar
- gegnum Ránar köldur.
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.