Markús Jónsson (Ármótum)
Markús Jónsson fæddist 3. apríl 1920 og lést 27. apríl 1998. Hann var kvæntur Önnu Friðbjarnardóttir. Þau bjuggu að Skólavegi 14 en flutti til Reykjavíkur árið 1987 og bjó þar síðustu árin.
Markús var skipstjóri en vann hjá Olís síðustu starfsárin.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Markús:
- Markús ég meina snaran
- meiðinn Jóns býsna veiðinn.
- Þórunnar gniðs á grunni
- gætir í formanns sæti,
- dýnur þó duggu píni
- dökku í hrinu rökkri.
- Ármóts ég piltinn pára,
- prýðis skipstjórann lýða.
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.