Jóhann J. Johnsen
Jóhann Jörgen Johnsen fæddist 9. október 1847 og lést 11. maí 1893. Hann var sonur Guðfinnu Jónsdóttur Austmann.
Jóhann var kvæntur Önnu Sigríði Árnadóttur. Þau hófu búskap sinn árið 1880 í gamla Frydendal. Synir þeirra voru: Gísli J. Johnsen, Kristinn Lárus Johnsen, Sigfús M. Johnsen, Guðni Hjörtur Johnsen og Árni Hálfdán Johnsen.
Í Frydendal ráku hjónin veitingasölu, útgerð og búskap.