Sveinn Jónsson (Hásteinsvegi)
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Sveinn Jónsson“
Sveinn Jónsson fæddist í Vestmannaeyjum 19. október 1931. Hann lést 6. apríl 2005. Foreldrar hans voru Jón Helgason frá Grund á Dalatanga og Jóna Sigurborg Jónsdóttir frá Eyri í Mjóafirði. Árið 1958 flutti Sveinn til Vestmannaeyja og ári síðar kvæntist Sveinn Mörtu Pálsdóttur frá Færeyjum. Þau bjuggu á Hásteinsvegi þar sem Marta býr enn. Börn Sveins og Mörtu eru: Heiða, óskírð (látin), Ingvar (látinn), Ingibjörg og Helga.
Sveinn lærði rennismíði og vélvirkjun og vann ýmis störf því tengd. Hann var einn af stofnendum Sveinafélags járniðnaðarmanna í Vestmannaeyjum. Auk þess var hann félagsmaður í Sjóstangafélagi Vestmannaeyja og starfaði mikið fyrir það félag.