Guðmundur Vigfússon (Holti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júlí 2006 kl. 13:27 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júlí 2006 kl. 13:27 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Smáleiðr.)
Fara í flakk Fara í leit

Guðmundur Vigfússon fæddist 10. febrúar 1906 og lést 6. október 1997. Foreldrar hans voru hjónin Guðleif Guðmundsdóttir frá Vesturhúsum í Vestmannaeyjum og Vigfús Jónsson í Túni í Vestmannaeyjum. Guðmundur ólst upp í Holti. Guðmundur var kvæntur Stefaníu Guðrúnu Einarsdóttur. Þau eignuðust tvö börn, þau Vigfús Sverri og Erlu. Hann fluttist frá Vestmannaeyjum 1957 og bjó lengst af í Hafnarfirði, þar af á Hrafnistu í Hafnarfirði frá 1978.

Guðmundur tók vélstjóra- og skipstjórapróf 18 ára gamall og árið 1946 „öldunginn" í Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Guðmundur var formaður á Voninni VE 113. Árið 1981 var Guðmundi afhent heiðursskjal Sjómannadagsráðs í Vestmannaeyjum með þökk fyrir gifturík störf í þágu sjómannastéttarinnar og byggðarlagsins.

Loftur Guðmundsson samdi formannavísu um Guðmund:

Að veiðum Guðmund Vigfússon
virðar telja frækinn,
hleður úr græði glæsta Von
garpur miðasækinn.