Ólafur Önundarson
Ólafur Önundarson fæddist 21. september 1915 og lést 27. júlí 1990. Kona hans var Bergþóra Magnúsdóttir, Bergholti.
Ólafur var formaður á Hauk VE 234 og síðar gerðist hann parketlagningarmaður og bjó í Kópavogi.
Loftur Guðmundsson orti eitt sinn formannsvísu um Ólaf:
- Ungur á Hauk við ægisdyr
- Ólafur á miðin sækir
- í vestfirskt kappa og víkingskyn
- veiðigæfu sækir.